Prufuæfingar

Átt þú vin, bróðir, systir, frænku eða frænda yngri en 18 ára sem langar að byrja í golfi??

Ef svarið er já þá biðjum við ykkur um að hvetja þau til að mæta á prufuæfingar fyrir börn og unglinga þar sem allir geta komið og fengið að prófa golf með tilsögn frá kennara endurgjaldslaust. Þessi tilraun okkar hefur reynst vel og fleiri og fleiri krakkar hafa komið inn í starfið hjá GR frá því við létum reyna á þetta í haust .

Æfingarnar eru á fimmtudögum milli kl 17:00 - 18:00 í Básum og kennari er Snorri Páll, S: 846-7430 email: snorri69@gmail.com

Mbk

Þjálfarar


púttmótaröð

Púttmótaröð barna og unglinga hefst sunnudaginn 19.janúar.

Mótið er opið öllum sem æfa golf hjá GR og er aldursskiptingin miðuð við 12 ára og yngri, 12 - 16 ára og 16 ára og eldri.

Mótið samanstendur af 8 skiptum þar sem spilaðir eru tveir 18 holu hringir þar sem betri hringurinn telur. Fjórir bestu hringirnir telja til Púttmeistara GR í hverjum aldursflokki fyrir sig. Því fleiri hringir sem spilaðir eru því meiri möguleiki á að bæta skorið sitt.

Húsið er opið á sunnudögum frá kl 11 - 13. Mótsgjald er kr 2000 fyrir öll skiptin.

Púttmeistari GR í barna og unglingaflokkum verður krýndur í veglegu hófi um miðjan mars.
forleldraráð


Tilkynning:


Allar æfingar hjá mínum hópum á morgun, mánudag, fara fram á Korpu en ekki í Básum vegna boltaleysis. Vikan gæti orðið erfið í Básum og við hvetjum alla til að fylgjast vel með á facebook eða www.grunglingar.blog.is varðandi breytingar.

Mbk Snorri Páll


Fundur

Fundur um vetrarstarf barna og unglinga GR verður í Grafarholti kl 20 00 þriðjudaginn 26 nóv allir þeir sem hafa áhuga um það sem við erum að gera eru velkomnir að mæta

Nýtt golfár að byrja

Sæl öll þar sem starfið fer á fullt eftir helgi vil ég bjóða alla velkomna og megi nýja golfárið bera með sér gæfu og gengi fyrir allt okkar fólk. Fyrir þá sem eiga ennþá eftir að skrá sig á æfingar vil ég minna á að gera það hið fyrsta svo við getum...

æfingar veturinn 2013-2014

Æfingatímar yngri flokka - Golfklúbbur Reykjavíkur Drengir A f. 1996 og 1997 mánudaga kl 19:00 - 20:00 Básar þriðjudaga kl 19:00 - 20:00 Korpa miðvikudagar kl 19:00 - 20:00 Básar Þjálfari: Snorri Páll s. 846-7430 snorri69@gmail.com Drengir B f. 1998 og...

Golfárið 2013-2014

Nú eru kennarar búnir að setja niður æfingatíma fyrir allt starfið sem hefst að nýju þann 4. nóvember af fullum krafti. Vinnu við val í Afrekshópa er einnig lokið og biðjum við alla að tengjast réttum hópum hér á facebook síðunni upp á upplýsingar að...

Næsta síða »

Höfundur

Afreks- og unglinganefnd GR

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband